Comfort - fyrir hundinn ehf er sérverslun sem leggur áherslu á fjölbreytt vöruúrval og gott verð. Markmið okkar er að bjóða fleiri valkosti í vöruúrvali en í boði hafa verið hér á landi fram að þessu, í bland við vörur sem þegar hafa fest sig í sessi. Með rekstri netverslunar býðst aukið rými á að halda kostnaði niðri, sem skilar sér beint til viðskiptavinar í lægra vöruverði
Reynt hefur verið eftir fremsta megni að hafa vefsíðuna sem aðgengilegasta fyrir viðskiptavini og gera þeim þannig kleift að versla þær vörur sem þeim vantar á einfaldan og þægilegan máta þegar þeim hentar. Auðvelt er að fara inn á síðuna og fylgjast með stöðu pöntunar og sjá hvar í ferlinu hún er.
Vörur sem sendar eru út á land eru sendar með Íslandspósti á kostnað kaupanda nema beðið sé um annað. Ef pantað er fyrir 5000 kr eða meira er frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu, annars leggst á 300 kr sendingarkostnaður. Hins vegar er einnig hægt að sækja vöruna, hafið samband ef þið viljið sækja.
Fyrir nánari upplýsingar og aðstoð, endilega hafið samband við okkur á comfort@comfort.is eða í síma: 6608504.