|
Starfsfólk Dekurdýra
Ásta María Guðbergsdóttir er annar eigandi Dekurdýra. Hún lærði hundasnyrtingar víða í Evrópu, bjó nokkur ár í Danmörku þar sem hún vann á hundasnyrtistofu, var um tíma í Finnlandi, Svíþjóð og á Spáni hjá ræktendum ýmissa tegunda og starfaði um tíma á hundasnyrtistofu í Englandi. Ásta hefur rekið hundasnyrtistofu á Íslandi frá árinu 2006. Hún ræktar Papillon smáhunda en á einnig Afghan, Saluki, Bichon Frisé og dverg Poodle. Ásta María tók þátt alþjóðlegu hundasnyrtikeppninni Groomania í Hollandi 2010 og hafnaði þar í 2. sæti í sínum flokki. Sóley Halla Möller er hinn eigandi Dekurdýra. Sóley starfaði sem hundaþjálfari í mörg ár, er hringstjóri á hundasýningum HRFÍ og mikil hestakona. Sóley hefur átt írskan og enskan setter og standard poodle, en í dag á hún sheltie, pommeranian og border collie blending. Sóley lærði hundasnyrtingar í Englandi árið 1995 og lagði þar áherslu á sýningaklippingar og reytingar. Árið 1999 hélt hún aftur út og tók svk. master í hundasnyrtingum, sem er viðurkennt nám af breska hundasnyrtifélaginu. Hundarnir sem notaðir voru til kennslu voru Crufts sigurvegarar af ýmsum tegundum. Sóley er með kennsluréttindi í hundasnyrtingum frá breska hundasnyrtifélaginu. Birna Willard lærði hundasnyrtingar hjá Ástu Maríu og Sóley og er kisukona Dekurdýra. Birna hefur átt fjölmarga Persaketti og á í dag Afghanhundinn Valiant. Birna hefur snyrt hunda og ketti hjá Dekurdýrum frá opnun, en áður aðstoðaði hún Ástu Maríu á snyrtistofu hennar, Hvuttakoti Anja Björg er Shih Tzu eigandi og ræktandi. Hún lærði hundasnyrtingar hjá Margréti Kjartansdóttur. Ásdís Björk Guðmundsdóttir lærði hundasnyrtingar hjá Sóley og útskrifaðist 2009. Hún er mikil búkona og líður best innan um dýrin sín í sveitinni! Ásdís á golden retrievertíkina Yrju, en auk þess eru west highland white terrier og íslenskur fjárhundur á heimili hennar. Stefán Arnarson er að læra hundasnyrtingar í Dekurdýrum. Stefán ræktar Siberian Husky hunda. Magnea Friðriksdóttir sér um verslunina og bókanir í snyrtingu. |